06.09.2008 17:48:37 / gulla

.

komin með nýtt!!

gullasigfus.blogspot.com


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 17:16:36 / gulla

kannski maður láti sig hafa það..

Datt í hug að byrja að blogga aftur.  Mest samt fyrir þá sem ég á í útlöndum, Auður farin og Arna að fara.  Það er samt ekki svo margt sem mig langar að skrifa um núna... kemur bara næst;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 21:14:32 / gulla

nýttnýttnýtt

er komin með nýtt blogg og þá held ég að álfurinn leggist í dvala í einhvern tíma... allavega nýja bloggið er www.zeltser.blogspot.com

 

 

gs

ps

what the heak whas that :P 


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.10.2007 11:47:37 / gulla

....þegar ég var að lesa Pollýönnu.....

jæja helgin að verða búin og var það bara hin fínasta helgi... nokkrar myndir sem voru teknar og ég kem á netið þegar ég nenni að kveikja á minni tölvu:D...byrjaði samt á egs þegar ég fór í ríkið og keypti bjór fyrir pabba dæmið snérist við þarna... svo datt ég og það er ekki ennþá komin hálka... mér er að fara fram jeijjjj... góð pitsa hjá Örnu á föst.kvöld, spiluðum popppunkt og átum nammi... sem var fínt... kiktum svo á rúntinn og fengum símhringingu frá kisa:haha:8) og sóttum kisa og hinngaurinn og fórum á láru... Gulla og Lilja komu, eða ætti ég að segja Jóhanna og Pollý :haha: þetta var hin mesta skemmtun.   Arna og Auður voru jógúrt og fóru heim snemma... een þær þurftu líka að fara að vinna, við skelltum okkur líka einmitt í fjallgöngu... með tvær sængur svo við gætum horft á stjörnurnar jájá spes, en gaman:D í gær vaknaði ég ekki mjög fersk en við góðann ilm því mamma var að baka og bakaði og bakaði og bakaði alveg heilann helling, saknaði þess oft í uk. Kvöldið í gær var líka einmitt fínt dró Kötu út á rúntinn með mér, sóttum Auði, fórum svo á róló með Sindra og Jóni:D Fórum svo á Láru... surprice surprice:) en stoppuðum stutt fórum einn rúnt og svo heim... en sjitt hvað þetta var samt góð helgi, sjitt hvað það er langt síðan ég hef verið úti til klukkan 5 um morgun...:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 17:20:57 / gulla

jájá

Ég ákvað að skella svona eins og einni línu hér inn, sérstaklega þar sem það er kominn mánuður síðan síðast :) og svo hef ég líka ekkert betra að gera... er að fara til UK á fimmtudaginn og er orðin hrikalega spennt, get eiginlega ekki beðið eftir að hitta Nikulás, svo ætla ég líka að kaupa og kaupa og kaupa... Hitta Gyðuling sem ég er ekki búin að hitta í ár, og verða tvítug :D8)  jájá svona er nú lífið og tilveran, eins og góð kona skrifaði í jólakort til mín;)

kv gs.

 

óó og eitt enn, BARA fyrir Trukkinn hehe, mjá ég er kisi, voða voða sætur kisi

hahahahaha8|;):haha::lol: 


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 17:49:09 / gulla

pannapannapannapanna

égerkominheimognenniekkiaðbloggaenégskalsamtskrifae-ðseinnabaraekkinúnaokbæ

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 17:43:49 / gulla

neinei ekki um jólin

ég læsti mig úti áðan... í fjórða skipti á þrem vikum nánar tiltekið.... ég fékk þá snilldarhugmynd að breggða mér aðeins útfyrir... þarsem ég hafði eitt svo gott sem öllum deginum liggjandi í rúminu og var eiginlega komin með hausverk af liggi... en allavega ekki margt stórfenglegt búið að ske síðan síðast... jú djók ég er búin að eignast litla frænku, hún kom í heiminn síðasta sunnudag.. þann 8. og ber nafnið Eloise Rachel(eða Rakel... er ekki alveg viss hvort þau velja) sagt   El-ó-ís  agalega krúttleg unga daman...

Það var víst bekkjarpartý í gær... og svona til að vera ekki alveg útundan ákvað ég að hringja og segja hæ... talaði við alla sem voru þar mjög skemmtilegt það.... mér var einmitt ráðlagt að fá mér trekkt og drekka bjór úr trekktinni... ekkert sorglegt það  svona ein með sjálfri mér... eða ekki sagði gunnar sveinn sem var svona hrikalega hjálplegur hann gerir þetta víst stundum sjálfur þegar hann er einn og hefur ekkert betra að gera.... heheh... fannst samt skuggalega mikið eins og ekkert væri breytt og þetta hefði verið næstum eins og inni í skólastofu... nema bara að allir voru frekar ölvaðir og engir kennarar, vantaði bara að heyra í kötlu öskra á strákana að hætta að éta glossið hennar.... hehe

æj ég er svo andskoti þreytt á öllu... geðvondu fólki og helv. hóteli

okbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 10:37:10 / gulla

yo mama

Vóóó frekar langt síðan bloggað var síðast.... góð ástæða fyrir því... ekkert net veihei eða þannig... ýmislegt búið að ske... frekar slæmt allt saman een ábyggilega margt gott sem á eftir að koma útúr því.... barnið ekkert farið að láta sjá sig.... bið endalaus bið...  hef samt sögu að segja hér... hehemmVið eigum ekki heima neinstaðar í augnablikinu... erum búin að vera á hóteli í meira en viku... því áin sem rennur á bakvið húsið okkar flæddi og húsið fylltist af vatni... það byrjaði allt þannig að á mánudaginn 25. jún. Var  ýkt mikil rigning... sem er reindar ekkert nýtt því það var búið að rigna meira og minna allann júní mánuð... en allavega þá rigndi alveg heilann helling og garðurinn okkar fór að fyllast af vatni... og rúnar fór útí garð og bjó til stíflu til að reyna að stoppa vatnið en svo fór nú að hægjast aðeins á rigningunni og við vorum nokkuð viss um að allt yrði ok... á þriðjudags morguninn vaknaði ég þegar rikki kom og vakti mig klukkan 7 um morguninn og ég hélt náttúrulega að barnið væri nú loksinns að koma en nei hún sagði mér að ég mætti alls ekki sturta niður ef ég færi á klóið og sagði mér svo að klæða mig í hvelli og koma niður því ég þyrfti að hjálpa þeim... þannig að ég klæddi mig og fór niður (skildi enn ekkert afhverju ég mátti ekki sturta niður hehe) og leit út um gluggann í bakherberginu og vá maður minn lifandi ég hafði aldrei séð neitt þessu líkt garðurinn var eins og sundlaug... og þegar rúnar opnaði hurðina út í garð flæddi bara vatnið inn... svo áður en við vissum af stóð Craig sem býr við hliðina á okkur inni stofunni okkar og sagði rúnari að koma með sér  og sækja sandpoka til að reyna að stoppa vatnið... þegar þeir voru farnir fór ég að fara með bækur og svoleiðis uppá loft og rikki færði svona ýmislegt sem hún gat fært, á meðan þessu stóð horfði nikulás á bubba byggir, þegar rafmagnið fór ákváðum við að nikulás þyrfti að fara til mömmu hennar rikki  þannig að ég dreif hann í föt og fór með hann þangað... þar sem honum var gefinn morgunmatur því í öllum æsingnum spáðum við ekkert í því að gefa barninu að éta....úpps! svo þegar rúnar kom heim aftur með sandpokana voru þeir settir fyrir bakhurðina til að reyna að stoppa vatnið en það virkaði klárlega ekki því áður en við vissum af var allt orðið á floti og það eina sem við gátum gert var bara að fara til mömmu hennar rikki og bíða þar... seinna um  daginn fór rúnar heim og vatnið náði honum upp að hnjám í bakherberginu en hann fór ekki inn í eldhús því þar hefði vatnið örugglega náð uppí mitti á honum... Þegar þau töluðu við tryggingarnar þá sögðu þeir að við þyrftum að finna okkur einhvern stað til að gista... og fengum herbergi hér á þessu líka agalega posh hóteli... þetta er eitt af fínni hótelum hér í retford. Allavega daginn eftir að við komum hingað á hótelið fórum við rúnar heim því þá vatnið komið inn í stofuna og við þurftum að færa það sem að við héldum daginn áður að mundi reddast þar inni. En það var svo mikið vatn allstaðar að í garðinum hjá mömmu hennar rikki er 2 metra há girðing og hún var næstum öll undir vatni... í gær kom einhver maður til að skoða húsið og hann sagði rúnari að rikki og nikulás mættu alls ekki fara inn í húsið því í versta falli getur maður fengið lifrarbólgu af vatninu sem var þar inni... oj barasta og það eru að minnsta kostu sex mánuðir þangað til við getum farið aftur heim.... æðiiii!! Jájá eins og allir sem mig þekkja vita...þá sofna ég oftast þegar ég er heima hjá fólki... og það gerðist einmitt á mánudaginn... vakti mikla lukku húseiganda hehe... annars er þetta hótel ekki svo slæmt er með mitt eigið herbergi sem kom sér vel á föstudaginn þegar ég og tveir aðrir aðilar keyptum kassa af bjór og komum með hingað hehhe svo átti ég víst að fara í partý á laug en ég nennti því bara engann veginn... sem er kannski ágætt því flestir sem voru þar enduðu með eina augabrún og vaxaða fótleggi... en jæja er eiginlega ekki að nenna að skrifa neitt meira ég á 6 og hálfann tíma eftir af netnotkun.. aldrei að vita nema ég skelli einhverju inn áður er við yfirgefum hótelið

» 5 hafa sagt sína skoðun

03.05.2007 16:18:11 / gulla

æj bara eitthvað

... HÆ! allt gott að frétta héðan svosem...:) Gott veður og heitt og ég er svo ýkt sólbrennd að það er ekki fyndið... var orðin öll útí útbrotum í gær... og píndi mig til að vera í peysu í dag þegar við fórum í bæinn oog svitnaði að sjálfsögðu og svitnaði hehe en ætli það sé ekki skárra en að vera skaðbrennd;) fékk einmitt frjókornaofnæmisnefspreyið mitt í fyrradag...sem er mjööög fínt var farin að þurfa á því að halda.  Annars fórum við í garðpartý til Gary og Lorraine á síðasta laug. sem var bara mjög gaman... vorum 9 eða 10... og allir ógeðslega ölvaðir...enda voru drukknir rúmlega 60 bjórar:P ég hringdi einmitt í mömmu mína þetta kvöld sem var í lítið betra ástandi en ég, en það var alltílagi... Þóra frænka ætlaði að passa hana.... hehe.  Svo er bara verið á fullu að klára að rífa niður veggfóður og nú veit ég ekkert hvað ég á að skrifa meira... það er slæmt þegar það líður svona stutt á milli blogga því ég veit ekkert hvað ég á að skrifa um....;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 16:10:02 / gulla

veivei

jæja loksinns loksinns kemur nýtt blogg... ábyggilega margir sem munu gleðjast alveg heil ósköp;) ég er bara engannveginn búin að nenna að skrifa eitthvað hér... var samt búin að ákveða að vera rosalega dugleg meðan ég var heima en ég var það ekki... en annars er nú ekki mikið að frétta héðan úr tjallalandi við erum búnar að vera í óðaönn að rífa niður veggfóður í gær og í dag... en það er nú ekki mikið meira sem er búið að gerast hér...  annars gæti ég líka sagt frá hinni mjög svo skemmtilegu för minni aftur hingað til UK...

hefst nú lestur!!

Aðfaranótt mánudagsinns 16 apríl vaknaði guðlaug eftir tveggja tíma svefn kl. 2:30.  Dreif sig fram og klæddi sig, burstaði tennur og athugaði hvort ekki væri allt í töskunni. kl. 4:00 ákvað guðlaug að fara nú að koma sér af stað á BSÍ þannig að hún vakti litla bróðir og sagði honum að hann gæti fært sig inn í herbergið sitt og sagði bless.  Síðan dröslaði hún töskunni upp stigann og út á götu og stóð þar í svona 10 mín og hringdi svo á Taxa, taxinn kom loksinns og var þá ferðinni heitið á BSÍ.  Þegar þangað var komið var enginn í afgreiðslunni því unga mjögsvostressaða stúlkan guðlaug var dálítið snemma á ferðinni;) en það var nú í lagi hún tilti sér bara og las Bændablaðið, þangað til klukkan varð 4:30. kl. 4:45 lagði rútan af stað frá RVK til KEF og var þetta hin yndælasta ferð þrátt fyrir að guðlaugu væri skítkalt og tennurnar glömruðu.  Loksinns þegar komið var til KEF, var guðlaug ekki alveg 100% á því hvert hún ætti nú eiginlega að fara en sá samt einhverja geðveikt langa röð og var viss um að það væri ekki express röðin, en hún var víst ekki svo heppin.  Því það var einmitt sú röð og varð guðlaug að gjöra svo vel og standa í röðinni í 20 mín.  En það var bara alltílagi hún stytti sér stundir með því að hugsa hvað hún væri nú samt heppin að vera ekki aftast í röðinni sem var nú orðin helmingi lengri en hún var þegar guðlaug skellti sér í hana.  Svo fékk hún nú miðann sinn og dreif sig af stað í fríhöfnina og keypti sér þar bók og eitthvað að éta en hún gat samt bara fengið nokkra bita af langlokunni því þá var kallað út í vél. Og um leið og hún fékk sér sæti slökknaði bara hreinlega á henni enda var hún ekki búin að sofa neitt mikið.  Þegar guðlaug vaknaði var flugvélin alveg að fara að lenda en það var samt eitthvað vesen og flugmaðurinn þurfti að fljúga í nokkra hringi áður en hægt var að lenda.  Svo eftir lendingu dreif hún sig af stað og kom sér í gegnum tollinn og labbaði á lestarstöðina og fékk að vita það að hún þyrfti að gjöra svo vel og bíða í tæpann klukkutíma eftir lestinni.  Sem hún nú gerði enda einstök rólegheita manneskja þar á ferð hehe;) þá var ferðinni nú heitið til Peterborough þar sem guðlaug þurfti að skipta um lest til að komast heim.  Og afþví að guðlaug er ekkert rosalega hugrökk svona alein á ókunnugum stað ákvað hún að spurja bara einhvern hvenær næsta lest til Retford væri og á hvaða palli.  Þá var henni nú bara tilkynnt það að ef hún vildi komast heim þá þyrfti hún að fara til Doncaster og taka svo aðra lest þaðan heim.  En þegar neðri vörin var farin að titra ískyggilega mikið fann kallinn út að ef hún mundi bíða í tæpa 2 tíma þá mundi hún komast beint heim, úff hvílíkur léttir.  og plús það að það tæki hana jafn langann tíma að bíða og fara beint heim eins og það hefði tekið hana að fara til Doncaster og þaðan heim.  Þegar hún kom heim sat Nikulás í stofuglugganum og beið eftir pabba sínum og þegar hann sá guðlaugu brosti hann út að eyrum og hljóp til mömmu sinnar til að segja henni að Bob væri komin heim.

THE END


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.03.2007 19:53:20 / gulla

afhverju

Afhverju er það að fólk virðist oft ekki geta gert það sem það vill innst inni, eða það sem hjartað segir manni að gera?  Er það því að maður er hræddur við að mistakast, að það verði hlegið af manni, að manni verði hafnað eða bara afþví að maður er viss um að geta ekki gert sjálfum sér til geðs.... Kannski er það máið, þú ert eina hindrun þín í að gera það sem þú sjálfur vilt, ég veit ekki... ég veit bara að í langann tíma hefur mig langað til að gera eitt, og jafnharðan og ég hugsa um það, stoppa ég sjálfa mig vegna þess að ég er viss um að það eigi aldrei aftir að ganga og alltaf enda ég jafn andskoti geðvond því ég geng alltaf um með þessa undarlegu tilfinningu í mér, og ég veit ekki hvort það er því ég taldi sjálfri mér trú um að ég gæti aldrei gert hlutinn eða því að ég er glöð að enginn hló að mér.  Stundum vildi ég bara að ég væri nógu örugg með sjálfa mig til að geta gert allt sem ég vil gera... en samt þegar ég hugsa um það er ég alltaf að verða öruggari og öruggari, ég er farin að gera gert ýmislegt sem ég gat aldrei áður einfaldlega vegna þess að ég er farin að hlusta minna og minna á litla kallinn sem situr á öxlinni á mér og segir mér að ég sé ómöguleg og geti ekkert... Fyrsta skref mitt var að fara til englands sem hingaðtil hefur gengið eins og í sögu, jafnvel betur en í sögu það næsta var að horfast í augu við það að ég er frábær manneskja sem á ótrúlega auðvelt með að eignast vini og já kynnast nýju fólki sem hefur líka gengið vel hingað til, því þegar fólk komst að því að ég væri að fara heim var ég spurð hvort að það væri nokkuð að eilífu því það væri betra að hafa mig hér heldur en þar og nú væri ég orðin ein af fjölskyldunni og þessvegna mætti ég ekki stoppa of lengi á íslandi... og þetta gerir mig svo ótrúlega glaða að heyra að fólk vill hafa mig og líti á mig sem vin sinn og það þriðja er það að ég er mjög heppin að vera þessi manneskja sem ég er því ef ég væri ekki ég þá gæti ég verið einhver allt önnur hundleiðinleg manneskja sem enginn vill neitt með hafa og ég verð bara að segja að ég gæti ekki verið stolltari af sjálfri mér að vera hér í englandi og að allt skuli ganga vel og ég á vini og þarf ekkert að óttast og ég væri alveg til í að búa hér í mörg ár í viðbót... kannski það hafi verið besta meðferðin við óöryggi að koma til englands ég allavega er viss um það að ég er orðin ný og betri manneskja síðan ég kom hingað og vona að ég eigi bara eftir að halda áfram að batna

þökk fyrir


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 12:42:48 / gulla

Mannstu fyrir langa löngu...

...já ekki ég... ég var ekki til fyrir langa löngu... HAHAHA8) ótrúlega fyndin eða..?  Allavega ekki neitt voðalegt sem ég hef að segja... Kannski þessvegna sem ég er að blogga...een það er samt gott veður hér í útlöndum... sól og blíða... jah allvaga sól hehe... ég þyrfti endilega að fara að setja inn myndir á þetta blogg... ekki nógu ánægð með sjálfa mig í þeim málefnum en myndavélin er búin að vera uppá hillu eiginlega alveg síðan ég kom hingað sökum batterísleysis... en því mun verða bjargað á fimmtudaginn... eða einhverntíman... Jæja núna er ég aldeilis farin að finna fyrir spenning... 16 dagar VEIIII... ég er samt engann veginn að nenna að ferðast... ég vil helst bara geta blikkað augunum og búmm ég er komin heim... það væri svo miklu auðveldara, en ekki mikið sem hægt er að gera í því...ég verð hvort sem er bara einn dag í rvk og þar er fólk sem ég vil gjarnan hitta...og vill gjarnan hitta mig...:) en svo veit ég eiginlega ekkert hvað ég get sagt meira....næst verða það punktar...


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 17:34:37 / gulla

naktir menn og steliþjófar heheh

mmm hvað það var ógeðslega gott veður í dag...og það var heitt...ég held bara hreinlega að sumarið sé komið....HAHAH og það er ekki komið á Íslandi HAHAHA... ég fór út að labba í dag...og vá hvað það var notalegt að vera ekki kalt.... AAAAAAAAA dásamlegt!!!

ég er alltaf að komast betur og betur að því hvað það er undarlegt fólkið sem ég er að umgangast hér...(en þá meina ég samt ekki tóti og ívar undarlegt) en á laugardagskvöldið þegar allir voru að fara heim af barnum gengum við fram hjá svona kerru...til að hengja aftaní bíl en allavega einn náunginn sem var þarna fékk þá snilldarhugmynd að ræna helv. kerrunni og skipaði öllum að stökkva uppí kerruna svo hann gæti skutlað fólki heim... og allir nema ég og konan hans stukku uppí kerruna svo keyrði hann af stað og endaði með að klessa á bíl og gera stærðarinnar beyglu og þá urðu allir hræddir og hlupu í burtu svo þegar við vorum komin í hvarf þá rákum við augun í nakinn mann sem stóð fyrir utan húsið sitt til að athuga hvað væri að ske... örugglega eitt það allra fyndnasta sem ég hef séð á æfi minni...fjúkandi reiður allsnakinn kall....:)

vá hvað þetta er algjört kjaftæði.... sorry allir ég veit ekki hvað hefur komið yfir mig


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 21:31:33 / gulla

27 dagar í seyðó

hmm... hvað skal segja? ég er búin að vera svo spennt yfir einhverju núna þessa viku...og ég veit bara ekkert afhverju, kannski er það því það er farið að styttast í að ég komi heim  en ég er bara hreinlega ekki viss:| ég fór nú út í gærkvöldi...því Rikki átti afmæli og við ætluðum öll út en Rúnar sofnaði svoleiðis að ég og Rikki fórum bara einar út...en hún stoppaði ekki lengi því ég held að krílið hafi verið að vesenast eitthvað of mikið... svo um kl. 2 um nóttina fóru allir heim... og ég endaði með að labba heim með vinum mínum og var þar þangaðtil 6:30 í morgun...:) og svo þegar ég ætlaði nú að fara heim þá bara var ég ekki svo viss hvaða leið ég ætti að fara en það reddaðist nú á endanum... með því að reyna að labba í áttina að lestarstöðinni því við eigum heima bara eiginlega í næstu götu við stöðina.  en svona til að breyta um umræðuefni þá á hann Nikulás afmæli á laugardaginn næsta og verður hann tveggja ára... ég er búin að kaupa handa honum afmælisgjöf og kort... allt Thomas the tank engine... sem hann elskar þannig að það verður gaman að sjá á honum svipinn þegar hann fær pakkann:) jú og svo kom pakki frá íslandi í gær, OSTUR veiiiiii  en annars er nú bara ekkert merkilegt að frétta… ekkert að ske en það er bara ekki svo slæmt þá þarf ég ekki að muna neitt mikið til að setja hér inn hehe


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 16:10:08 / gulla

undarlegt en satt

jæja... það þekkja allir hinn skemmtilega skrýtna Breska lögguhatt... ekki satt?  Allavega, ekki fyrir svo mjög löngu síðan komst ég að því að ef ólétt kona gengur fram á lögumann með svona hatt, og konan er kannski alveg að pissa á sig og það er ekkert almenningsklósett nálægt, má hún krefjast þess að löggi taki niður hattinn svo hún geti pissað í hann, og löggi getur ekki neitað...því auðvitað er það ekki leyfilegt að pissa á götuna

en annars er bara allt gott að frétta... febrúar kominn og næstum farinn og þá tekur við mars sem verður örugglega fullur af gleði og tilhlökkun:)... ég er líka búin að ráðast á hræðslu mína við hið ókunnuga með því að fara alein á barinn...sem ég hef ekki getað gert hingað til og er ég ofsalega stolt af sjálfri mér

jæja allir að kvitta

bæjó


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3